Um Dr. Robert Cook

Robert Cook, FRCVS., PhD., prófessor í skurðlækningum (hættur störfum) við Tufts Háskólann í Massachusetts, er dýralæknir sem hefur hefur mest alla starfsævi sína frá útskrift frá Royal Veterinary College (London árið 1952) verið félagi í klíniskum háskóladeildum í dýralæknisfræði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hann er höfundur tveggja bóka fyrir hestamenn, Specifications for Speed in the Racehorse: The Airflow Factors og Metal in the Mouth: The Abusive Effects of Bitted Bridles. Hann hefur einnig framleitt myndband sem kallast 'Selecting Racehorses Using the Airflow Factors'. Í rannsóknum hans hafa veikindi í munni hestsins, eyrum, nefi og kverkum verið í brennidepli, með sérstakri áherslu á hindrun öndunarvegs, orsökum blæðinga í lungum veðhlaupahesta og hin skaðlegu áhrif méla sem tjáningabúnaðs.
Cook hefur gefið út hundruðir greina í vísindatímarit og einnig í hestatímarit. Þessar greinar hafa verið framlag sem hafa verið til hagsbóta fyrir hestinn og haft hagnýtt gildi fyrir hestafólk. Hann trúir því að það verk sem hann hefur unnið frá árinu 1997, að rannsaka mélin sem tjáningabúnað milli manns og hests og að hanna Beisli án Méla, gera meira fyrir velferð hests og knapa en nokkuð sem en hann hefur áður gert á starfsævi sinni. Beislið hjálpar hestafólki í öllum tegundum hestaíþrótta að ná fram betri frammistöðu. Munnur hestsins er einn viðkvæmasti líkamspartur hans. Þegar þrýstingur er settur á málminn sem liggur á tungu og tannlausa bilinu í munni hestsins veldur það honum óþörfum sársauka og hræðir hann. Óttinn kallar fram flótta- eða baráttuviðbrögð svo sem rokur, hrekki, taumstífni, fælni og svo frv. Það að setja mél í munn hests sem er að fara að hlaupa er svipað og að setja beisli á hestinn þegar hann á að fara að éta. Mélin hafa neikvæð áhrif á hestinn og í röngum höndum geta þau verið miskunnarlaus. Rannsóknir Dr. Cooks hafa sýnt fram á að mélin eru ábyrg fyrir yfir hundrað hegðunarvandamálum hjá hestum. Því er hann ánægður með að geta samþykkt Beisli án Méla sem ákjósanlegan valkost á móti bronsaldartækni mélanna.
Beisli án Méla býður upp á tjáskiptatækni sem er öruggari, mannúðlegri og mun áhrifaríkari en mélin. Þegar beislið er borið saman við hefðbundin mélalaus beisli eins og hackamore, bosal og sidepull þá veldur það engum sársauka, skaða á beinum eða bólgum í vefjum þar sem þrýstingurinn dreifist jafnt á höfuðið, ekki eingöngu á nefbein. Allar áðurnefndar gerðir af tjáskiptabúnaði byggjast á að setja á sársauka eða framkalla ógn um sársauka svo hesturinn svari, en Beisli án Méla er sársaukalaust. Virkni beislisins felst tveimur kjálkaólum sem liggja í kross undir kjálka hestsins sem framkalla jafnan þrýsting á nefbein, hnakka, kinnar, kjálka og höku. Þetta gerir knapanum kleift að eiga tjáskipti við hestinn á meinlausan og jafnframt vinalegan hátt með því að þrýsta öðrum helmingi höfuðsins til hliðar (til að stýra) eða framkalla framlag um allt höfuð hestsins (hægja á, stöðvun). Þangað sem höfuðið fer, eltir hesturinn. Cook álítur að þetta ''höfuð-faðmlag'' kalli fram það sem hann nefnir vinalegan höfuðlás. Hann telur þetta vera það besta sem hefur komið fyrir hestinn síðan maðurinn setti fyrst málm upp í munn hans fyrir 6000 árum síðan. Búnaðurinn stendur meira að segja framar en ístöðin hvað uppfinningu varðar þar sem ístöðin voru eingöngu manninum til hagsbóta - en Beisli án Méla er til hagsbóta fyrir bæði mann og hest.
Við bjóðum þér að lesa efnið á heimasíðu okkar og læra meira um hvað Beisli án Méla getur gert fyrir þig og hestinn þinn.
Þú getur haft samband við Dr. Cook með vefpósti: drcook@bitlessbridle.com
Stiklað á stóru um starfsævi Dr. Cook (á ensku)
Stutt sjálfsævisaga dýralæknis (á ensku)
Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin