Hvað er svona merkilegt við Beisli án Méla og hvernig virkar það?

Virkni Beislis án Méla gengur út frá allt annarri hugmynd en aðrar gerðir beisla. Beisli með mélum gerir knapnum kleift að eiga tjáskipti við hestinn með því að setja þrýsting á mjög viðkvæman munn hans. Önnur mélalaus beisli, t.d. hackamore, bosal og sidepull virka aðallega í gegnum þrýsting á nefbein. Þessar aðferðir við stjórnun hestsins geta valdið honum sársauka og jafnvel meiðslum (sár í munni, bólgið nefbein). Á hinn bóginn gerir Beisli án Méla knapanum kleift að eiga tjáskipti við hestinn með sársaukalausum þrýstingi á allt höfuðið. Á meðan beisli með mélum setja yfirleitt mikinn þrýsting á lítið svæði í hinum viðkvæma munni setur Beisli án Méla léttan og jafnan þrýsting á svæði sem eru ekki eða lítt viðkvæm. Þetta gerir beislið með tveimur kjálkaólum sem liggja í kross undir kjálka hestsins sem framkalla jafnan þrýsting á nefbein, hnakka, kinnar, kjálka og höku. Þetta gerir knapanum kleift að eiga tjáskipti við hestinn á meinlausan og jafnframt vinalegan hátt með því að þrýsta öðrum helmingi höfuðsins til hliðar (til að stýra) eða framkalla framlag um allt höfuð hestsins (hægja á, stöðvun). Þangað sem höfuðið fer, eltir hesturinn.

Þar sem Beisli án Méla framkallar léttan þrýsting og dreifir honum yfir stórt og síður viðkvæmt svæði er það mun mannúðlegra en mél. Það sér fyrir betri tjáskiptum, stuðlar að betra sambandi milli manns og hests, hefur ekki áhrif á öndun eða særir hestinn eins og mél gera. Árangurinn verður betri frammistaða hjá hestinum.

Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin