Af hverju valda mélin sársauka?
Munnurinn er einn viðkvæmasti líkamshluti hestsins. Jafnvel mildasta átak á mélin valda sársauka. Hesturinn er flóttadýr sem hefur þróast þannig að hann felur sársauka sinn eins og mögulegt er til þess að forðast að laða að rándýr. Samt sem áður er sársauki sem er orsakaður af mélum sýndur með breytingum á hegðun. Það er sýnt með hræðslu, flótta, baráttu og taugapínu í andliti (facial neuralgia). Rannsóknir Dr. Cooks hafa sýnt fram á að það eru ekki færri en 120 mismunandi merki um sársauka sem eru orsökuð af mélunum (meira um þessi merki á aðalsíðu). Þar sem rannsóknir hans hafa ekki verið birtar nógu víða eru margir knapar ómeðvitaðir um þann sársauka sem mélin valda.
Könnun sem Dr. Cook gerði á 74 höfuðkúpum af hestum af 4 söfnum í Bandaríkjunum sýndu að 74% eða 55 þeirra höfðu hnúða á neðra kjálkabeini þar sem mélin liggja. Þessir beinhnúðar voru orsakaðir af mélum og þegar knapi hefur séð þessi ummerki þá skilur hann þann sársauka sem mélin valda. Nokkrir af þessum 74 hestum höfðu í lifanda lífi aldrei verið með mél og sáust engir hnúðar á kjálkabeinum þeirra. Einnig var gerð könnun á 35 hauskúpum af sebrahestum og fundust engir beinhnúðar á kjálkum þeirra.
Heilbrigður kjálki og kjálki með beinhnúðum (neðri).
Mél hræða hesta og gerir þá kvíðna. Fælinn, áhyggjufullur og stressaður hestur er hættulegur til reiðar. Slíkur hestur mun ekki veita skipunum athygli því hann er sífellt annars hugar vegna sársaukans sem hann upplifir í munni sínum. Hesturinn mun vera lengi að læra og tamningin lengist til muna. Einn af eiginleikum Beislis án Méla er að margir taugaveiklaðir hestar verða rólegir.
Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin