Er hægt að nota Beisli án Méla á allar hestsgerðir og í allar hestaíþróttir?
Sundsprettur með Beisli án Méla
Já. Hvað hestsgerð og geðslag hests varðar eru engar þekktar takmarkanir á notkun Beislis án Méla. Það er hægt að nota það mun meira en mél. Til dæmis ef hestur er sár í munni, skorinn á vör, með tannvandamál, eða sár á tungu, gómi eða á innri kinnum getur mél orðið ónothæft. Hestar sem eru vanir að hanga/toga í taum, hrista hausinn, harðir í taumi, dettnir eða erfiðir til reiðar á einhvern annan hátt gætu haft einna mest gagn af því að vera riðið með Beisli án Méla.
Það eru nokkrar tegundir hestaíþrótta þar sem beislið hefur ekki enn verið notað (eins og kerrukappreiðar á hestum) eða mjög lítið (eins og póló). Líklega er það aðeins tímaspursmál hvenær þessi göt verða fyllt frekar en að talið sé að beislið sé ónothæft fyrir þessar íþróttir. Það er því engin ástæða að ætla að Beisli án Méla geti ekki staðist kröfur fyrir þessar gerðir hestaíþrótta þegar það stendur sig við allar aðrar.
Einu takmarkanirnar fyrir notkun Beislis án Méla eru manngerðar. Notkun beislisins hefur enn ekki verið leyfð í ákveðnum keppnum erlendis en hérlendis er það leyfilegt (sá nánar hér). Von okkar er sú að þessar keppnisreglur verði uppfærðar til að auka velferð og öryggi hesta og knapa um allan heim, en fyrir það stendur beislið.
Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin