Eru einhver sérstök atriði sem þarf að hafa í huga þegar maður setur Beisli án Méla á hestinn?
Áður en beislið er notað á hestinn er mikilvægt að lesa notkunarhandbókina vandlega. Hægt er að kynna hestinn fyrir hinum nýja tjáskiptabúnaði með hringteymingu eða í tvítaum áður en lagt er á. Nánar um þetta er hægt að sjá í notkunarhandbókinni sem fylgir hverju beisli. Við mælum með því að beislið sé fyrst reynt í aðhaldi eins og fimigerði svo hestur og knapi geti öðlast sjálfstraust með nýja búnaðinn við tiltölulega öruggar aðstæður. 
Röng stilling:
Nefólin er of laus og dregst upp þegar tekið er í tauminn.
Þá bunga kinnólarnar út í leiðinni.
Virkni Beislis án Méla byggist á vogarafli sem framkallað er af svokölluðum O-hring á nefólinni. Algengustu mistökin þegar Beisli án Méla er sett á hestinn er að hafa nefólina of ofarlega. Næstalgengustu mistökin eru að herða nefólina vitlaust. Nefólin ætti að vera um það bil 3,5 til 5 cm frá munni hestsins (fer eftir höfuðstærð) og liggja ofan á nefbeininu. Þegar þetta hefur verið stillt þarf að herða nefólina þannig að hægt sé að koma flötum fingri á milli hökunnar og ólarinnar. Nefólin á ekki að renna upp þegar þrýstingur kemur í gegnum tauminn. Ef það gerist hættir vogaraflið að virka og knapinn þarf meira átak en þörf er á til að eiga tjáskipti við hestinn. Með því að stilla beislið vitlaust geta myndast aumir staðir undan nuddi þegar nefólin er að renna til, sem hún á ekki að gera.
Áður en lagt er af stað er mikilvægt að athuga hvort ólarnar liggi rétt meðfram höfði hestsins og að kjálkaólarnar séu alls ekki fastar undir nefólinni.
Nánar í Notkunarhandbók.
Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin