Samkvæmt leiðbeiningum frá ykkur þá skal maður setja nefólina nokkuð neðarlega á nefbeinið. Hefur það ekki áhrif á öndunina eða liggur ólin aðeins á nefbeininu?

Á þeim stað sem við mælum með liggur nefólin enn á nefbeininu (endi nefbeinsins) og það er enginn möguleiki á því að ólin trufli öndun. Það er ekkert brjósk á þessum stað og endi nefbeinsins nær lengra að nasaopinu en margir gera sér grein fyrir.

Ef nefólin er of neðarlega hindrar hún öndun og gæti orsakað það að hesturinn hristi höfuðið eða jafnvel að hann prjóni. Ef nefólin er of ofarlega mun knapinn missa einhvern part af stjórn sinni þar sem ólin hreyfist fram og til baka og vogarafl beislsins virkar ekki sem skyldi. Við þessar aðstæður mun knapinn þurfa að leggja harðar að sér við að stjórna hestinum og þróar þannig með sér eymsli í öxlum.

Neðsti hluti nefólarinnar ætti hjá flestum hestum að vera ekki lengra en 3,5-5 cm frá munni hestsins. Þessi viðmiðun er almenn og í fáum tilvikum þarf fjarlægðin að vera meiri eða minni til að vera ásættanleg. Svo lengi sem nasaholin eru ekki teppt, því lægra því betra.

Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin