Á hvaða hátt er Beisli án Méla betra en önnur mélalaus beisli eins og hackamore, bosal og sidepull?
Í fyrsta lagi, ólíkt öðrum hefðbundnum mélalausum beislum býður Beisli án Méla upp á tjáskipti fyrir allar gerðir hestaíþrótta, allar hestsgerðir og fyrir byrjendur í hestamennsku upp í þaulreynda knapa. Í öðru lagi er það nánast ómögulegt að meiða hest með Beisli án Méla. Þetta þýðir að byrjendur munu síður lenda í vandræðum eða búa þau til með því að nota Beisli án Méla.
Mélalausa beislið hackamore getur verið ásættanlegur búnaður á vel þjálfuðum hesti í réttum höndum, en beislið getur auðveldlega verið misnotað og valdið hestinum óþægindum og jafnvel skaða. Beislið framkallar stöðvun en er lélegur búnaður þegar skal stýra hestinum. Hesti sem riðið er með hackamore verður að geta svarað samverkandi taumhaldi (knapinn þrýstir taumnum að hálsi hestsins eftir því í hvaða átt hann kýs að fara). Vélrænn hackamore (mechanical hackamore) getur valdið sársauka og jafnvel hættu. Hann virkar þannig að þrýstingur er settur á nefbein og höku hestsins sem veldur hestinum sársauka, sérstaklega þar sem keðja er undir hökunni. Óskynsamleg notkun þessa beislis getur jafnvel skaðað nefbeinið. Þessi gerð af hackamore getur fengið hestinn til að hringa sig of mikið, rétt eins og mélin geta valdið, og valdið hestinum öndunarerfiðleikum. Sum 'yfirvöld' erlendis mæla jafnvel með því að stilla eigi beislið þannig að það geti hindrað öndun hestsins og gefa einnig í skyn að stjórnunin eigi að hluta til að vera með kæfingu.

Enski hindrunarstökks hackamore (English jumping hackamore) hefur leðurhökuól og enga keðju og er því ekki eins harkalegur.

Beislið bosal hefur sömu takmarkanir og hackamore og er ekki hæfur í allar gerðir af hestaíþróttum.
Beislið sidepull býður upp á stjórn til hliðanna en hefur lélega stöðvun. Stjórnun byggist aðallega á þrýstingi á nefbein sem getur valdið hestinum sársauka eins og t.d. bólgum og skaða á nefbeini.
Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin