Er hægt að nota Beisli án Méla á lítið tamda hesta?

Til að svara stuttlega... JÁ! Beislið er frábært við frumtamningar og þú getur gert allt sem þarf -hringteymt, bakkað, teymt með, notað tvítaum, riðið út... Beisli án Méla er vinsælt erlendis og þar hefur fólk uppgötvað að beislið hjálpar þeim að ná meiri árangri á þrem dögum en þau ná venjulega á þremur vikum. Þeim hefur fundist mun þægilegra að nota það heldur en önnur hefðbundin beisli.

Þú getur ekki meitt hest með þessu beisli. Hestinum finnst þetta vera eins og múll en knapanum finnst þetta vera eins og venjulegt beisli. Það er mun minni hætta á að þú hræðir ungan hest með því að hefja tamningu hans í þessu beisli heldur en með beisli með mélum. Eins og venjulega byrjar þú tamninguna frá jörðu. Í notkunarhandbók sem fylgir beislinu er því lýst hvernig má nota beislið við að hringteyma og teyma með.

Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin