Ef ég þjálfa hestinn minn í Beisli án Méla get ég þá skipt yfir í mél ef ég þarf að keppa eða selja hestinn?

Ungur hestur getur t.d. verið taminn með Beisli án Méla og lært að bregðast við taumnum frá jörðu og undir knapa. Þegar allri grunnvinnu er lokið er hægt að kynna mélin fyrir hestinum til að gera hann hæfan fyrir keppni þar sem krafa er gerð um notkun méla. Best er að frumtemja hest án méla svo hann þrói ekki með sér andúð á mélunum (sjá nánar á aðalsíðu) áður en hann lærir undirstöðuþættina. Tamningin gengur mun betur með færri vandamálum og hesturinn lærir hraðar ef hann er ekki meiddur með mélum. Einnig fær knapinn tækifæri á þróa sjálfstraust hjá hestinum og vinátta mun skapast sem byggir grunninn fyrir áframhaldandi þjálfun.

Þegar skipta skal úr mélalausu yfir í mél mun það auðvitað byggjast á höndum knapans hversu auðvelt það verður. Því næmari hendur því auðveldara verður að skipta um búnað. Hæfni til að nota mélin eru próf á kunnáttu knapans. Ef knapi getur skipt úr mélalausu yfir í mél án þess að kalla fram einhverja neikvæða hegðun má óska honum til hamingju fyrir hæfni hans sem reiðmanns. Ef hesturinn sýnir mótþróa við mélin sýnir það veikleika mélanna sem tjáskiptatækis þar sem þetta er aðferð sem eingöngu mjög fær knapi getur notað án þess að valda hestinum óþægindum.

Svo ekki hika við að frumtemja keppnisefni án méla. Það er þó augljóst að það dugar ekki að setja mél upp í hestinn daginn fyrir keppni. Hesturinn verður að vera vaninn við notkun méla á seinni stigum tamningarinnar til að geta lært á þau og sætt sig við þau. Hinsvegar eru mélalaus beisli leyfð í keppni hérlendis þar sem stuðst er við FIPO-reglurnar. Nánar
hér.

Það er möguleiki á að skarpur hestur sem hefur alltaf verið þjálfaður í beisli sem aldrei meiðir hann sýni tilfinningar sínar þegar hann er settur í beisli sem meiðir hann. En það er mun meiri hætta á að sami hestur sem hefur verið þjálfaður alla tíð í beisli með mélum þrói með sér mun meiri mótþróa og hegðunarvandamál. Að byrja að nota sársaukalausan búnað getur ekki annað en verið jákvætt við frumtamningar og áframhaldandi þjálfun þar sem hesturinn getur lært án þess að búast við sársauka, sáttur og glaður.

Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin