Má keppa með Beisli án Méla?

Í FIPO reglunum stendur eftirfarandi um beislabúnað í íþróttakeppni (gildir einnig fyrir gæðingakeppni):


8.1.3.2.1 Beisli og beislabúnaður

Reglurnar gilda á öllu mótssvæðinu og allan tímann meðan á mótinu stendur:

8.1.3.2.1 Leyfð beisli og beislabúnaður

Nota má hvaða mél sem er ásamt beislabúnaði ef þau uppfylla eftirfarandi skilyrði:

Þau henti til reiðar (séu ekki ætluð til aksturs eða annarra nota með hesta)
Þau henti reið á íslenskum hestum

Þau henti hestinum sem þau eru notuð á;

Þau séu ekki á lista yfir bönnuð mél

Öll mél eru leyfð í öllum keppnisgreinum.  Engu má bæta við mél öðru en hringjahlífum og keðjuhlífum og ekkert annað má vera í munni hestsins.

Ríða má hestum með mélalausum beislabúnaði, að því tilskyldu að hann uppfylli ofangreind skilyrði.

Ákvörðun dómara um notkun hvers kyns méla eða beislabúnaðar á tilteknu móti er endanleg fyrir það ákveðna mót.
Tekið af www.lhhestar.is

Skv. þessu er leyfilegt að keppa með Beisli án Méla svo lengi sem aðaldómari mótsins setur ekki skilyrði fyrir ákveðnum beislabúnaði. Því er mikilvægt að vita fram í tímann hvort einhverjar takmarkanir verði settar á beislabúnað á viðkomandi móti.

Á minni mótum eins og firmakeppni og vetrarleikum eru yfirleitt ekki gerðar neinar kröfur um búnað enda ekki farið eftir sérstökum keppnisreglum. Því ættu knapar að geta notað Beisli án Méla á þessum mótum og átt rétt á sigurlaunum ef til tekst.

Kynbótadómar

Í reglum um kynbótadóma stendur:

Reiðtygi og annar búnaður:

Beislabúnaður: Hann skal fara vel, vera rétt stilltur og ekki valda hestinum eymslum eða særindum.
...
Óheimilt er að nota beislabúnað sem ekki er í samræmi við framangreindar reglur. Dómnefnd getur veitt undanþágu á reglum þessum til notkunar á mélalausum beislabúnaði ef ástæða þykir til.
(brot úr reglum um beislabúnað, sjá nánar á
www.bssl.is)

Skv. þessu er hægt að óska eftir því að fá að nota Beisli án Méla í kynbótasýningu, en mikilvægt er að athuga í tíma hvort það sé möguleiki.

Það er okkar einlæga von að dómarar taki Beisli án Méla með opnum hug og lofi knöpum að nota það við alla keppni sem og kynbótasýningar þar sem þeir verða m.a. ófærir um að skaða/meiða hestinn í munni eins stundum vill gerast í hita leiksins. Því ætti notkun beislisins að færa bæði knöpum, hestum og dómurum ávinninga - ef hestinum líður vel mun knapanum einnig líða vel sem leiðir svo af sér betri sýningar.

Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin