Mun Beisli án Méla geta gert mér kleift láta hestinn minn ganga með fallegan höfuðburð eins og með mélum?

Já! Beisli án Méla mun færa þér allan þann höfuðburð sem þú þarft. En kannski ætti að orða þetta á annan hátt. Ef þú vilt ná fram sannri söfnun sem inniheldur, en er ekki takmörkuð við hringun hnakkans ættir þú að kappkosta að ná henni fram með sæti og fótum heldur en eingöngu með höndunum. Smátt og smátt, með því að leggja áherslu á sæti og fætur mun hesturinn þinn þróa með sér sterkara bak og kviðvöðva sem gerir honum kleift að bera þyngd knapans og halda góðu jafnvægi. Þetta er það sem kallast 'sjálfberandi', þ.e. hesturinn ber sig sjálfur, sem getur aðeins komið frá vel þjálfuðum hesti sem notar yfirlínuna og bakhlutann rétt. Viðeigandi hringun er hluti af réttri notkun yfirlínu en er ekki orsök þess. Söfnun sem er takmörkuð við hringun eingöngu og fengin með taumstuðningi er fölsk söfnun. Því miður, þar sem mélin valda sársauka er það frekar auðvelt að ná fram falskri söfnun með taumunum einum saman.

Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin