Getur Beisli án Méla mögulega látið hestinn minn hætta að hrista á sér hausinn í sífellu og klóra sér utan í mig?
Já. Mélin liggja ofan á tungu og tannholdi hestsins og mismunandi hringir og stangir snerta munnvikin. Tungan, gómurinn, tannholdið og varirnar hafa næmar taugar. Mélin liggja beint yfir taugaendum skyntaugarinnar sem liggur til munnsins frá heilanum. Þar sem þessi taug hefur þrjár greinar kallast hún þrenndartaug (Trigeminal nerve). Hinar tvær greinarnar ganga til augna, efri kjálka, nasahola og andlitsvöðva. Í graðhesti eða geldingi liggja mélin einnig yfir rótum neðri augntanna. Þar sem hesturinn hefur mjög góðan ''búnað'' til að gæta að hvað fer ofan í hann er hann mjög vandlátur á hvað hann lætur upp í sig.

Fyrir nokkrum árum gat Dr. Cook ekki sett fram neina sannfærandi útskýringu á því hvers vegna hestar hrista höfuðið þegar búið er að leggja á, né komið fram með viðunandi meðferð. En með því að rannsaka hin frábæru áhrif sem Beisli án Méla hefur á hegðun hesta komst hann að því að mélin eru aðalástæða þess að hestar hrista höfuðið. Hann ályktar að höfuðhristingurinn sé algengt merki um þrenndartaugapínu (trigeminal neuralgia) sem orsakast af stöðugum þrýstingi mélanna á taugina. Í manneskju er þrenndartaugin oft aðsetur taugapínu. Í hesti er sársaukinn í neðri kjálka, efri kjálka og augum það sem útskýrir öll merki höfuðhristings-heilkennisins.
Margir hestar sem eru gjarnir á að hrista hausinn sýna mikinn ákafa strax eftir þjálfun með því að nudda andlitinu upp að því sem er nálægt, t.d. eins og knapann. Dr. Cook telur að þetta sem og viðkvæmni við björtu ljósi séu merki um verki í andliti. Sum hross hætta samstundist að hrista höfuðið þegar mélin eru tekin í burtu, en önnur kynnu að þurfa meiri tíma. Það getur gerst að hestur vilji klóra sér og jafnvel hrista höfuðið í fyrstu með Beisli án Méla ef hann er þekktur fyrir það, en það er vegna minninga hans - tengir beisli við verki í andliti. Hann lætur af hegðuninni eftir fyrsta reiðtúrinn eða svo þar sem heili hans býr til nýjar tengingar - Beisli án Méla -> engin taugapína.
Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin