Fréttir

23.1.2010

Langar þér í Beisli án Méla?



Nú á að fara að panta nýja sendingu af beislunum góðu og munu þau berast til landsins í febrúar.

Til að eignast beisli
Það þarf að hafa samband fyrirfram til að taka frá beisli úr sendingunni þar sem fjöldi beisla sem verða send til landsins verða aðeins í samræmi við þann fjölda sem pantar. Því miður verður ekki hægt að hafa lager eins og er, þökk sé kreppunni góðu! 
Það þarf að greiða staðfestingargjald til að festa sér beisli út pöntuninni.

Til að panta (taka frá):
Senda vefpóst á beisli@beisli.net eða símleiðis 869-3902 (Linda Karen)

Með sólarkveðju,
Starfsfólk beisli.net

Skrifað 23.1.2010 kl. 14:27 af beisli.net

Bein slóð á færslu

8.11.2009

Beisli til á lager!



Reiðhesturinn Heimir frá Meðalfelli gjörbreyttist við notkun Beislis án Méla, hann fékk aukið þol og hætti að rymja í reiðtúrunum. Hér er hann að vorlagi 2008 eftir að hafa verið á húsi í léttu trimmi í um mánaðartíma - en gleðin leynir sér ekki.

Beisli hafa verið pöntuð og munu koma til landsins síðustu vikuna í nóvember. Nokkur beisli verða til á lager svo hægt er að hafa samband til að láta taka frá hafi maður áhuga á að eignast þennan frábæra búnað.

Kær kveðja,
Starfsfólk beisli.net

Skrifað 8.11.2009 kl. 15:39 af beisli.net

Bein slóð á færslu

13.10.2009

Jólagjöfin í ár?



Hafir þú áhuga á að gefa vinum og vandamönnum frábæra gjöf í ár - eða langar sjálfum/sjálfri að prufa beislið fyrir jól þá er hægt að panta með vefpósti beisli@beisli.net

Mikilvægt er að pantanir berist fyrir lok október svo beislið berist örugglega fyrir jól því það þarf að sérsníða þau fyrir íslenska hestinn. Minni á að hægt er að skila beislinu eftir að hafa átt og prufað það í mánuð frá því það berst viðtakanda - og fá það endurgreitt að fullu. Við hjá beisli.net efumst þó um að til þess komi því beislið stendur fyrir sínu ef það er stillt rétt á hestinn og farið rólega af stað í byrjun (byrja í gerðinu og lofa hestinum að átta sig og fara svo í reiðtúr þegar maður er alveg öruggur með að hesturinn skilji ábendingarnar). Góðar notkunarleiðbeiningar fylgja.

Með bestu kveðju,
Starfsfólk beisli.net

Skrifað 13.10.2009 kl. 21:42 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

5.6.2008

Beisli án Méla á Landsmóti



Hægt verður að kynna sér Beisli án Méla nánar á komandi landsmóti á Hellu en við verðum með sölubás á markaðssvæðinu. Glæsilegur hestur verður okkur til liðsinnis yfir vikuna við að sýna frábæra virkni beislisins.

Sjáumst á landsmóti!




Skrifað 5.6.2008 kl. 23:45 af beisli.net

Bein slóð á færslu

5.2.2008

Takk fyrir góðar móttökur!


Beisli án Méla hefur verið tekið opnum örmum og þykir okkur mjög vænt um þessar jákvæðu móttökur! Þakka ykkur öllum kærlega fyrir. Íslenskir hestamenn eru greinilega mjög áhugasamir um þennan frábæra búnað og það er innileg von okkar að hann verði þeim að miklu gagni og gæfu.

Í þessari viku mun birtast nýtt myndband af keppnishesti sem var riðið með beislið í fyrsta skipti. Hann var svolítið hissa fyrst en svo skyldi hann ábendingarnar og varð ákaflega sáttur við búnaðinn. Hann gerði allt sem hann var beðinn um hnökralaust, hvort sem það var söfnun á hægu tölti í góðum höfuðburði, yfirferðartölt eða mjúk niðurhæging af harðastökki. Knapanum fannst hesturinn betri en með mél og fannst það ánægjulegt að loksins ætti hann myndband af hestinum þar sem hann væri alltaf með lokaðan munninn. Endilega lítið aftur við í vikunni til að sjá þennan ágæta hest gera allt það sem keppnishestur þarf að gera - með Beisli án Méla.

Með sólarkveðju,
Linda Karen Gunnarsdóttir umboðsaðili The Bitless Bridle á Íslandi
Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir starfsmaður

Skrifað 5.2.2008 kl. 9:48 af beisli.net

Bein slóð á færslu

6.12.2007

Vefsíða Beislis án Méla opnuð


Velkomin á vefsíðu Beislis án Méla!

Á þessari síðu getur þú kynnt þér byltingarkenndan tjáskiptabúnað og fræðst um hvaða áhrif mél hafa á hesta. Síðan er enn í vinnslu og mun efni verða bætt inn jafnt og þétt.

Með kærri kveðju,
Linda Karen Gunnarsdóttir
Umboðsaðili Beislis án Méla (The Bitless Bridle) á Íslandi

Skrifað 6.12.2007 kl. 13:03 af beisli.net

Bein slóð á færslu

Fara á upphafssíðu

Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin