Fréttir

5.2.2008

Takk fyrir góðar móttökur!


Beisli án Méla hefur verið tekið opnum örmum og þykir okkur mjög vænt um þessar jákvæðu móttökur! Þakka ykkur öllum kærlega fyrir. Íslenskir hestamenn eru greinilega mjög áhugasamir um þennan frábæra búnað og það er innileg von okkar að hann verði þeim að miklu gagni og gæfu.

Í þessari viku mun birtast nýtt myndband af keppnishesti sem var riðið með beislið í fyrsta skipti. Hann var svolítið hissa fyrst en svo skyldi hann ábendingarnar og varð ákaflega sáttur við búnaðinn. Hann gerði allt sem hann var beðinn um hnökralaust, hvort sem það var söfnun á hægu tölti í góðum höfuðburði, yfirferðartölt eða mjúk niðurhæging af harðastökki. Knapanum fannst hesturinn betri en með mél og fannst það ánægjulegt að loksins ætti hann myndband af hestinum þar sem hann væri alltaf með lokaðan munninn. Endilega lítið aftur við í vikunni til að sjá þennan ágæta hest gera allt það sem keppnishestur þarf að gera - með Beisli án Méla.

Með sólarkveðju,
Linda Karen Gunnarsdóttir umboðsaðili The Bitless Bridle á Íslandi
Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir starfsmaður

Skrifað 5.2.2008 kl. 9:48 af Linda Karen

Bein slóð á færslu

Til baka

Fara á upphafssíðu

Höfundarréttur © 2007 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin