Fréttir
13.10.2009
Jólagjöfin í ár?
Hafir þú áhuga á að gefa vinum og vandamönnum frábæra gjöf í ár - eða langar sjálfum/sjálfri að prufa beislið fyrir jól þá er hægt að panta með vefpósti beisli@beisli.net
Mikilvægt er að pantanir berist fyrir lok október svo beislið berist örugglega fyrir jól því það þarf að sérsníða þau fyrir íslenska hestinn. Minni á að hægt er að skila beislinu eftir að hafa átt og prufað það í mánuð frá því það berst viðtakanda - og fá það endurgreitt að fullu. Við hjá beisli.net efumst þó um að til þess komi því beislið stendur fyrir sínu ef það er stillt rétt á hestinn og farið rólega af stað í byrjun (byrja í gerðinu og lofa hestinum að átta sig og fara svo í reiðtúr þegar maður er alveg öruggur með að hesturinn skilji ábendingarnar). Góðar notkunarleiðbeiningar fylgja.
Með bestu kveðju,
Starfsfólk beisli.net
Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin