Beisli án Méla

Myndbönd


Keppnishestur - febrúar 2008

Þetta heimatilbúna myndband var tekið af fullorðnum og viljamiklum keppnishesti þann 3. febrúar 2008 þar sem hann var reyndur með Beisli án Méla í fyrsta skipti. 

Í byrjun var hann dálítið hissa á hinum nýja tjáskiptamáta en fljótt fór honum að líka vel 
og gerði allt það sem hann var beðinn um. 

Við afsökum afar léleg myndgæðin en vonandi getið þið samt sem áður notið myndbandsins og séð virkni beislisins þó það sjáist því miður ekki alltaf vegna lélegra gæða. 

Úr þessu verður bætt í næsta myndbandi.


Í frjálsri reið - október 2007

Þetta heimatilbúna myndband var tekið af þrem ólíkum hrossum þar sem þeim var riðið 
með Beisli án Méla í fyrsta skipti. 

Knaparnir riðu þeim mjög frjálslega og leyfðu þeim að vera í lítilli söfnun. 

Hrossin voru öll nýkomin á hús og því ekki í miklu formi en myndbandið sýnir 
frábæra virkni beislisins og hvað hrossin tóku því vel. 

Hér verða birt fleiri myndbönd þar sem sjá má mismunandi hesta í ólíkum verkefnum (keppnisform, skeið, fimiæfingar, frjálsar útreiðar og fl.) með Beisli án Méla.


Erlend myndbönd

Dressúr

Dressúr (dressage) eða fimi með mélarlaust beisli.



Hindrunarstökk með Beisli án Méla

Hér má sjá hross í keppni í hindrunarstökki með Beisli án Méla. Það sést ekki mjög vel þar sem myndgæðin eru léleg

en á 30, 100 og 125 sekundu er það mjög greinilegt. 

Hrossið svarar öllum ábendingum mjög vel og verður ekki fyrir neinu áreiti frá höndum líkt og gjarna sést í keppnum í hindrunarstökki, þ.e. hross gapandi og hristandi hausinn.




Dressage (fimi) í Beisli án Méla

Myndband af hesti að keppa í fimi með Beisli án Méla. Í burði með fallegan höfuðburð án þess að vera niðurnjörvaður

líkt og gjarna er gert við fimihross (hrossin hafa gjarna 2 mél í munni og eru bundin niður við bringu),
auðsveipur, tekur aldrei á móti taum.



 
Reiðskóli í Bandaríkjunum - öll hross með Beisli án Méla (og berfætt)

Hér má sjá börn í reiðskóla í Bandaríkunum að framkvæma sýningaratriði fyrir önnur börn og foreldra.

Börnin eiga auðvelt með að stjórna hestunum þó stórir séu og eru þeir ákaflega sáttir við börnin og beislið. 

Börn eru oft ekki nægilega næm hvað varðar notkun taumsins varðar og er því notkun Beislis án Méla tilvalin fyrir þau þar sem þau geta stýrt hestinum á einfaldan hátt, auðveldara að stöðva hestinn og þau valda hestinum ekki óþægindum eða skaða munn hans með ónæmri taumhönd.