Ávinningar af notkun Beislis án Méla
BETRI STJÓRNUN : Enginn málmur í munni hestsins framar. Maðurinn hefur verið að stjórna hestinum með því að beita þrýstingi á einn viðkvæmasta líkamspart hestsins. Náttúruleg reiðmennska er nú mikið nær venjulegu fólki með Beisli án Méla. Hesturinn er ánægðari, afköstin aukast og hann verður fúsari til að vinna með knapanum.
ÁHÆTTA OG ÖRYGGI : Betri ,,bremsur". Aldrei getur knapanum verið neitað um stjórnina. Hesturinn getur ekki ,,baslað". Með þessu beisli getur knapinn ekki orsakað sársauka.
ÞRÝSTINGUR Á HNAKKA, ENGIN ANDÞRENGSLI : Beisli án Méla stjórnar hestinum með sársaukalausum þrýstingi á hnakka, kinnar og nef með tveimur kjálkaólum sem liggja í kross. Með þessu gefur það hestinum eðlilegri stöðu á höfði og hálsi. Stjórnunin er ekki lengur háð sársaukafullum þrýstingi á munn eða of mikillri hnakkabeygju sem veldur andþrengslum. Beisli án Méla ýtir á meðan mélin toga.
MEIRA SÚREFNI OG MEIRI ORKA : Vegna þess að hesturinn þinn er ekki með ýkta hnakkabeygju sem þrengir öndunarveg í kverkunum (reynir að flýja sársauka) og vegna þess að hann er ekki að hreyfa tunguna bak við mélin (sem veldur því að mjúka gómfillann ýtist aftur og meltingarhluti kverkanna stækkar á kostnað öndunarhlutans) - mun hesturinn þinn geta andað að sér meira súrefni og öðlast meiri orku. Vegna þess að hann berst ekki lengur við mélin sparar hann orku og stendur sig betur.
FRELSAÐU HÁLSINN : Nýja beislið veitir hálsinum það frelsi sem er grundvallaratriði fyrir hvern íþróttamann. Hálsinn á hesti sem hengur á ''mélunum'' (á taumnum) hefur tilhneigingu til að verða stífur og stirður. Stirðleiki á gangtegundum fylgir á eftir og kraftur, þokki og taktur náttúrulegra hreyfinga hestsins tapast.
AUKIN EINBEITING : Mélin orsaka fyrirstöðu fyrir sem best afköst. Þau örva meltingarkerfið (munnvatn, að tyggja, tungu- og gómhreyfingar) sem virka gegn hesti í þjálfun. Að sleppa mélunum leyfir taugakerfi hestsins að einbeita sér að því að anda og hlaupa í stað þess að þurfa að bregðast við áreiti sem er gjörsamlega andsnúið því að þjálfa. Hvorki hestur né maður ætti að vera beðinn um að borða OG æfa á sama tíma.
NÁÐU JAFNVÆGI : Beisli án Méla bætir jafnvægi hestsins. Það léttir á frampartinum, bætir rými, eykur vilja til verks og hraða. Það má sjá fyrir bættari frammistöðu í öllum greinum hestamennsku, allt frá fimireið til gæðingakeppni.
MINNKAR LÍKURNAR Á AÐ HESTURINN HRASI : Hestur sem er ekki eins framþungur (hestar eru gjarnir á að ''liggja á mélunum'') setur minni áreynslu á beinin, liðina, sinarnar og liðbönd framfótanna.
ENGIN FLEIRI ,,UNDANBRÖGÐ FRÁ MÉLUNUM" : Að sleppa mélunum er lækning á algengum og afar kunnuglegum vandamálum sem þau valda (sjá nánar á aðalsíðu).
HENTU TUNGUMÉLUNUM : Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af tungunni í reiðhestinum þínum þar sem hesturinn þinn mun aldrei verða í vandræðum með hana aftur.
ÁTT ÞÚ HEST SEM HRISTIR HÖFUÐIÐ Í SÍFELLU? : Mélin geta valdið taugapínu í andliti og getur það verið ástæða þess að hesturinn hristir hausinn og klórar sér ákaft í þjálfuninni við öll tækifæri.
RYMUR HESTURINN ÞINN? : Þegar hestar draga tunguna til baka frá mélunum til að forðast sársauka veldur það þeim öndunarerfiðleikum þar sem mjúka gómfillan ýtist aftur, vélinda opnast og öndunarvegur þrengist/lokast. Þá fer hesturinn að rymja og mæðist fyrr en eðlilegt er.
ER HESTURINN ÞINN FRAMÞUNGUR? : Mélin koma hestinum úr jafnvægi og dregur úr vilja til verks.
KENNIR ÞÚ REIÐMENNSKU OG VILT KOMA Í VEG FYRIR AÐ ÓVANUR EINSTAKLINGUR SKAÐI MUNNINN Á FULLTAMDA HESTINUM ÞÍNUM? : Beisli án Méla er svarið.
Höfundarréttur © 2007 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin