Notkunarleiðbeiningar
(fylgja með öllum beislum)

''Að setja mél í munn hests sem er að fara að þjálfa er eins og að beisla hest sem er að fara að éta''
Robert Cook

TIL AÐ FORÐAST SLYS

Skv. lífeðlisfræðilegum rökum er Beisli án Méla (The Bitless BridleTM) öruggara en beisli með mélum. Reynsla af beislinu frá árinu 1997 styður þessa fullyrðingu. Samt sem áður er hestamennska áhættusöm og The Bitless Bridle Inc. og umboðsaðili beislisins geta ekki tekið ábyrgð á neinum slysum sem gætu gerst.

ATHUGIÐ

Þegar hestinum er riðið í fyrsta skipti með Beisli án Méla getur það kveikt á mikilli frelsistilfinningu hjá hestinum en fjörið mun þó aðeins vera tímabundið. Þú verður að vera viðbúin/n þessum möguleika jafnvel þótt þetta gerist aðeins hjá 1% hrossa. Því er best að byrja í aðhaldi eins og gerði eða reiðhöll frekar en á opnu svæði. Einnig er hægt að undirbúa hestinn með því að hringteyma hann með beislið eða tvíteyma hann áður en farið er á bak. Þannig má sýna honum nýja búnaðinn og taka úr honum spennu ef hún er til staðar og til fyrirbyggja vandræði.

NOTKUN

Virkni beislisins er í grundvallaratriðum allt önnur en hjá öðrum mélalausum beislum (t.d. hackamore, bosal og sidepull). Virkni þess byggist á tveimur kjálkaólum sem framkalla léttan þrýsting um allt höfuðið. Í raun framkallar beislið einskonar höfuðlás (sjá mynd að neðan). Ólíkt mélunum þjónar Beisli án Méla lífeðlisfræðilegum þörfum hests sem er að þjálfa. Fyrst og fremst veldur beislið hvorki sársauka né ótta og hefur ekki áhrif á öndun hestsins eins og mél gera.



AÐ STÝRA

Stuttur þrýstingur á tauminn öðru megin (hvít ör) þrýstir sársaukalaust en ákveðið á gagnstæða hluta höfuðsins (svartar örvar). Hestar svara betur þegar höfði þeirra er ýtt sársaukalaust til hliðar í Beisli án Méla en þegar þeir eru togaðir sársaukafullt til hliðar með mélum (sem þrýsta á munnvik, tungu og viðkvæma vefi munnsins). Þangað sem höfuðið fer - fylgir hesturinn. Þeir vilja frekar að sársaukalaus þrýstingur komi yfir höfuð þeirra í gegnum tauminn heldur en að allur þrýstingurinn lendi á viðkvæmum munninum.

AÐ STÖÐVA

Stuttur þrýstingur á tauminn beggja vegna framkallar mildan þrýsting á allt höfuðið sem kallar fram eftirgjöf hjá hestinum. Þessar ''bremsur'' eru mun áreiðanlegri en þær sem mélin bjóða upp á. Beisli án Méla framkallar sársaukalausan þrýsting yfir hnakka, nefbein, bak við eyrun (svæði sem er næmt fyrir áreiti), kinnar og höku.

Flestir hestar (og knapar) taka beislinu á fyrsta degi. Þeir þurfa ekki vikur til að venjast því. Nokkrum knöpum hafa fundist hestarnir vera þyngri á tauminn til að byrja með en það líður hjá. Hestarnir munu verða léttari á tauminn og flestum knöpum finnast hestarnir eiga auðveldara að safna sér og vera í góðum höfuðburði þegar þeir hafa vanist beislinu og öðlast traust gagnvart því.

Ef knapi vill kynna hestinn sinn fyrir Beisli án Méla stig af stigi þá er hægt að hringteyma/tvíteyma hestinn í beislinu áður en riðið er út. Flestum þykir það ekki nauðsynlegt en samt sem áður er þetta þægileg þjálfunaraðferð og róar einnig hestinn ef hann er spenntur. Fyrir þá sem treysta ekki alveg á samskiptatæknina og vilja fara enn varlegar í hlutina er hægt að setja beisli með mélum yfir Beisli án Méla. Þá er knapinn með 2 tauma (taumurinn í mélin er slakur) og getur þannig verið með varataum í mélin ef hann er óöruggur gagnvart mélalausu aðferðinni.

NOTKUN TAUMSINS

Þar sem beislið ýtir (togar ekki) er notkun taumsins sú sama og með mélum. Beisli án Méla má hugsa sem búnað sem stýrir hestinum með því að hafa bein áhrif á höfuðið sjálft og þess vegna þarfnast hesturinn ekki neinnar sérstakrar þjálfunar til að skilja ábendingarnar (þarf t.d. að temja hross sérstaklega til að skilja beisli með mélum).

Knapar ættu að leggja sig fram við að hafa mjúkar hendur (alltaf betra þó hesturinn meiði sig ekki) og gott sæti. Tauminn á yfirleitt ekki að nota sem öryggisbúnað ef knapinn skyldi missa jafnvægið. En ef það er nauðsynlegt er hægt að nota tauminn til að ná jafnvæginu aftur án þess að meiða hestinn.

Beisli án Méla framkallar ''bremsur'' sem eru betri en þær sem mélin framkalla. Ólíkt beisli með mélum getur hesturinn ekki sett tunguna undir mélin/gripið mélin á milli tannanna þegar hann er að reyna að verjast sársauka og tekið allar bremsur af knapanum.

Hestar rjúka vegna ótta eða sársauka. Með því að fjarlægja mélin hefur knapinn útrýmt algengustu orsök ótta og sársauka hjá hestinum. Sársauki á öðrum svæðum en í munninum getur þó líka verið ástæða roku. Til dæmis sársauki í baki eða fótum (frá hnakki eða skeifum) verður líka að taka inn í myndina.

Ef hesturinn sýnir einhvern tíma merki um að hann sé að fara að rjúka í Beisli án Méla er hægt að ná stjórninni aftur með því að beygja honum í hring. Ef þetta er ekki hægt vegna aðstæðna þá getur knapinn reynt að taka í tauminn til sitthvorrar handar hratt til skiptis. Þetta er gert af ákveðni og krafti til að ná athygli hestsins aftur og mun þetta ekki meiða hann á nokkrun hátt. Mundu einnig að setjast vel aftur og djúpt í hnakkinn um leið ? og auðvitað eiga allir hestar að vera tamdir til að skilja orðið ''HÓÓ''.

Það er ekki mælt með því að knapinn leggist á tauminn til að reyna að stöðva hest sem rýkur. Ef reiðmennskan verður einhvern tíma spurning um styrk þá er það hesturinn sem sigrar.



AÐ BEISLA OG STILLA RÉTT

Nefólin ætti að vera stillt þannig að neðri hluti hennar sé um 3,5-5 cm frá munnvikum hestsins (fer eftir höfuðstærð). Með þessum hætti liggur nefólin en á nefbeininu. Stundum getur komið fyrir, þó aðallega í fyrstu, að hestur sem hefur áður verið riðið með mélum og sýnt af sér mikinn kláða í andliti og svo frv. (taugapína í andliti), finnist óþægilegt að hafa nefólina svona neðarlega. Ef þetta gerist reyndu þá fyrst að taka léttar í tauminn. Í öðru lagi getur þú hækkað nefólina lítillega til að athuga hvort hestinum líki það betur. Styrkur ábendingarinnar minnkar eftir því sem nefólin er hærra stillt, en kannski er það bara það sem viðkomandi hestur þarf. Ef nefólin er stillt of neðarlega þá mun hún teppa nasaholin sem getur orsakað það að hesturinn hristi höfuðið eða prjóni. Hestar sem eru gjarnir á að klóra sér mikið í andliti eða hrista höfuðið (taugapína í andliti sem orsakast v/þrýstings mélanna á þrenndartaug í munni) gætu gert það í fyrstu skiptin með Beisli án Méla. Það er vegna þess að minning hestanna um óþægindin er tengd við beislið og stundum þarf hesturinn örlítinn tíma til að átta sig á að sársaukinn í andlitinu er horfinn.

Nefólin á að vera þrengri en vanalega er gert við reiðmúl. Hún á að vera þannig að þú komir aðeins einum fingri (flötum, ekki á hlið) milli höku hestsins og ólarinnar. Nefólin verður að vera rétt stillt því annars getur hún farið að renna fram og til baka þegar tekið er í tauminn. Hesturinn getur þá fengið nuddsár undan ólinni og knapinn þróað með sér eymsli í öxlum því hann þarf að taka fastar í tauminn þar sem vogaraflið er mun minna í beislinu. Þegar kinnólarnar bunga út þegar tekið er í tauminn er það merki um að nefólin sé ekki nægilega strekkt. Þó er einhver hreyfing á kinnólunum eðlileg en þegar þær bunga út í sífellu þá er það stillingaratriði. Hestar eru með misstór höfuð og því er mikilvægt að hika ekki við að gata nefólina ef hún er annað hvort of þröng eða of víð.

Þrátt fyrir að nefólin sé nokkuð strekkt þegar hún er rétt stillt þá getur hesturinn samt drukkið og étið án þess að finna til óþæginda. Þó er þægilegast fyrir hestinn að losað sé um ólina ef hesturinn á að éta, sérstaklega ef hann á að fá hey.

Þegar þú ætlar að taka beislið af hestinum þarftu aðeins að losa sylgjuna sem er undir hökunni.

Stilltu hægri og vinstri sylgjurnar sem á kinnólunum svo nefólin sitji á réttum stað 3,5-5 cm frá munnvikum hestsins. (sjá A á mynd)

Stilltu hægri og vinstri kjálkaólar (sjá B á mynd) þannig að það séu um 8-10 cm frá O-hringunum á nefólinni að hringunum sem þú festir tauminn. (sjá C á mynd).

Hertu nefólina þannig að þú komir aðeins einum flötum fingri undir hana að neðanverðu (sjá D á mynd). Vertu viss um að kjálkaólarnar séu alls ekki fastar undir nefólinni.

Festu tauminn í hringina sem eru á endum kjálkaólanna. Athugaðu hvort ennisólin liggi vel meðfram enni hestsins og að hún sé ekki of nálægt eyrum.

Rétt staðsetning kjálkaólanna

Þó Beisli án Méla sé komið til þín tilbúið til að setja á hestinn þá eru hér eftirfarandi leiðbeiningar ef þú skyldir fjarlægja kjálkaólarnar og vilt setja þær á aftur:

Settu beislið á hestinn og stilltu nefólina.

Vertu viss um að O-hringirnir á nefólinni liggi niðri og meðfram nefólinni.

Taktu sylgjuendan á kjálkaólinni og settu hana í gegnum O-hringinn á nefólinni að utanverðu, undir hökuna og að hinum helming andlitsins og festu sylgjuna þar.

Gerðu hið sama við hina kjálkaólina.

Festu tauminn við O-hringinn á endum kjálkaólanna.



Kjálkaólar fara í gegnum O-hring á réttan hátt




Kjálkaólar fara í gegnum O-hring á rangan hátt

AÐ BREYTA YFIR Í MÚL

AÐ TEYMA

Þú getur teymt hestinn þinn með því að taka tauminn niður af hálsi hestsins, rétt eins og með beisli með mélum. Festu báða taumlásana við báða O-hringi kjálkaólanna til að gera teyminguna betri. Ekki binda hestinn þinn með því að nota kjálkaólarnar eingöngu.

AÐ BREYTA Í MÚL (enginn taumur)

Taktu hægri kjálkaólina, færðu hana undir höku hestsins og festu hana við vinstri O-hring nefólarinnar með taumlás (fæst t.d. í hestavöruverslunum og hjá okkur á næstunni).

Gerðu hið sama við vinstri kjálkaólina, færðu hana undir hökuna og festu hana með taumlás í hægri O-hring nefólarinnar.

Til að binda hestinn eða til að hringteyma hann getur þú fest tauminn í annan hvorn O-hringinn á nefólinni eða fest taumlás á neðanverða nefólina og fest tauminn þar.

AÐ BREYTA Í MÚL (með taum)

Festu hringteymingartauminn við annan O-hringinn á nefólinni (ekki á kjálkaólinni) ? EÐA ? festu taumlás á neðanverða nefólina og festu tauminn þar.

Þú vilt kannski prófa þig áfram með það að festa tauminn í beislið. Ef taumlásinn á hringtaumstaumnum þínum er nógu stór þá getur þú líka fest hann beint við báðar kjálkaólarnar (gættu þín á að klemma ekki efnið svo það skemmist síður).

Það er alltaf best að hafa öryggis-taumlás sem gefur eftir ef átakið verður of mikið. Þannig má forðast slys ef eitthvað hendir.

AÐ HRINGTEYMA (enginn taumur)

Breyttu beislinu í múl skv. upplýsingunum að ofan og festu hringtaumstauminn við annan hvorn O-hringinn á nefólinni.

AÐ BINDA HESTINN INN

Beislaðu hestinn eins og þú gerir fyrir reiðtúr. Festu svo teygjurnar við gjörðina/hnakkinn og svo í O-hringina á nefólunum.

ÁBENDINGAR

Beisli án Méla er fyrir alla hesta, ekki aðeins þá sem sem eru vandamálahestar út af notkun mélanna. Það eru ekki neinar þekktar takmarkanir á notkun Beislis án Méla á neinu sviði hestaíþrótta. Beislið er líklegt til að bæta frammistöðu hesta í öllum gerðum hestaíþrótta, allt frá fimireið til gæðingakeppni.

Beisli án Méla hjálpar hesti sem sýnir neikvæða hegðun vegna mélanna og ekki síður ef hestur er með tannvandamál, sár í munni og svo frv. Á síðu okkar www.beisli.net má finna enn frekar upplýsingar um áhrif méla á hestinn.

VIÐHALD

Beislið er úr beta-efni sem er með kjarna úr nyloni og er húðað með vinyl. Þetta þýðir að það er mjög sterkt og þarf ekkert sérstakt viðhald. Ef beislið verður skítugt er nóg að bleyta það og hengja til þerris. Ef það þarf að fjarlægja fitu er hægt að nota örlitla sápu til að hreinsa hana.

ÞÚ GETUR HJÁLPAÐ

Ef þú og hesturinn þinn kunnið vel við Beisli án Méla værum við mjög þakklát ef þú gætir aðstoðað okkur við að koma á framfæri orsökinni fyrir meiri samhljómi milli manns og hests. Jákvæð umsögn/frásögn frá þér til annarra knapa myndi vera afar kærkomin og vera þeim hvatning til að kynna sér búnaðinn. Þú getur sent þína umsögn á beisli@beisli.net og verður hún birt á heimasíðu okkar www.beisli.net. Þú þarft ekki að skrifa undir nafni frekar enn þú vilt. Einnig þykir okkur mjög vænt um að fá ljósmyndir til að fá að birta á síðu okkar af þér og hestinum þínum.

Við tökum einnig öllum ábendingum þínum fagnandi, bæði neikvæðum og jákvæðum þar sem við notum upplýsingarnar til að bæta vöruna og allt sem að henni snýr.

BEISLI ÁN MÉLA - ÞÚ TEKUR ENGA FJÁRHAGSLEGA ÁHÆTTU

Ef þér líkar ekki við Beisli án Méla getur þú skilað því innan 30 daga frá móttöku og fengið það endurgreitt. Mikilvægt er að nótan fylgi með (svona fyrir bókhaldið!). Einskis verður spurt en við myndum sannarlega hlusta á ástæðu þess hvers vegna þú skilar beislinu. Beislin þurfa að vera hrein og óskemmd svo hægt sé að endurgreiða þau að fullu.

Ef einhverjar spurningar vakna um notkun beislisins eða ef þú lendir í vandræðum hikaðu þá ekki að hafa samband við umboðsaðila í síma 8693902 (Linda Karen) til að fá ráðleggingar og svör.

Höfundarréttur © 2007 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin