Ljósmyndir
Hér má finna ljósmyndir frá notendum og nokkrar frá okkur. Okkur þykir vænt um að fá ljósmyndir til að birta hér á síðunni. Hægt er að senda mynd/ir með lítilli umsögn með á beisli@beisli.net.
Gangsett með Beisli án Méla
Hryssan Stilling á lipru hægu tölti, nýlega farin að tölta af viti á þessari ljósmynd. Höfuðburður orðinn verulega góður í dag ásamt betri burði á gangi - beislið reyndist gulls ígildi fyrir þessa hryssu sem var alltaf frekar fælin og taugaveikluð en það er horfið í dag.
Kynning hjá Dropa
Frá kynningu beisli.net hjá Stormsdeildinni Dropa, sem er Dýrafjarðardeild hestamannafélagasins Storms á Þingeyri veturinn 2009. Þessir hestar prufuðu Beisli án Méla kvöldið fyrir kynninguna og stóðu sig frábærlega í bæði skiptin og það var mjög gaman að fara vestur, alveg hreint frábær heimsókn og frábært fólk.
Hætt að fælast - þökk sé Beisli án Méla
Þessi hryssa var fremur taugaveikluð í reið og mjög gjörn á að fælast ef einhver reið aftan að henni. Eftir einn vetur með Beisli án Méla er taugaveiklunin farin, hryssan er hætt að fælast og mikil sjálfsöryggi hefur látið á sér kræla. Orðið uppáhaldshross, þökk sé beislinu.
Í gangsetningu með Beisli án Méla
Þessi hryssa hefur verið í gangsetningu með beislið og hefur það gengið mjög vel. Hryssan tók stakkaskiptum með Beisli án Méla en hún er mjög viljug og var hálf stjórnlaus með mélin. Í dag þykir eigandanum og hryssunni gaman að fara í útreiðartúr en áður var það hálfgerð kvöð í augum beggja.
Eva Dögg og Röðull
,,Niðurstaðan er sú að hesturinn er miklu öruggari, þægari og að öllu leiti skemmtilegri reiðhestur. Við höfum jafnvel getað notað hann fyrir minna vant fólk, þannig að þrátt fyrir nokkra hnökra þá er þessi hestur alveg að blómstra, sem ég vil meina að hann hefði ekki gert án Beislis án Méla. Við Röðull þökkum fyrir okkur!''
Með Beisli án Méla í fyrsta sinn
Þessi hestur svaraði beislinu vel í fyrsta skipti og var mjög sáttur við það. Hægt að hleypa honum og hægja niður á fet án vandkvæða, hægja niður af yfirferðartölti, fara um á hægu tölti og svo framvegis.
Barn að stýra hesti með Beisli án Méla
Barnið er ófært um að meiða hestinn sem kann vel á Beisli án Méla. Barnið er í raun öruggara en ef það væri að nota mél sem gæti meitt hestinn vegna ónákvæmra handa sem gæti orsakað neikvæða hegðun hjá hestinum eins og rokur eða lélegar bremsur.
Höfundarréttur © 2009 Bitless Bridle. Öll réttindi áskilin