Beisli án Méla

Umsagnir frá notendum

Picture

Okkur þykir mjög vænt um að fá umsagnir og ljósmyndir frá notendum Beislis án Méla og birtum á þessari síðu með þeirra leyfi. 

Á síðu framleiðanda (www.bitlessbridle.com) má svo finna yfir
300 umsagnir frá reiðmönnum sem nota Beisli án Méla.


Stykkorð úr umsögnum (erlent)

Umsagnir í fullri lengd (erlent)






Umsagnir


5. ágúst 2011
Guðfinna Pétursdóttir


Merin sem ég keypti þetta fyrir er búin að vera erfið í beisli síðan ég keypti hana fyrir 3 árum, hún hefur örugglega verið það hjá fyrri eiganda því hann vildi losna við hana sem fyrst. Ég var búin að prófa svo margt, allar aðferðir sem mér datt í hug, öll mél sem ég hafði reynslu á að nota og margt annað. En ekkert virtist ætla að virka svo ég ákvað bara að skella mér á beislið frá ykkur, mér leist svo vel á þetta allt saman.

Ég prufaði það á hana eiginlega um leið og ég fékk það í hendurnar, fyrst í smá aðhaldi og hún virtist taka því ágætlega og ég ákvað að fara á henni í reiðtúr og prófreyna þetta algerlega. Hún er mjög viljug og skapstór, en samt mjög hvekkt og taugaóstyrk (líklega útaf mélum) og hún fékk þessa frelsistilfinningu sem þú talaðir um, ég réð bókstaflega ekki við neitt. Ég var ekkert rosalega hrifin af þessari útkomu og varð pínu fúl og beislið endaði bara uppá snaga og ég fór að reyna annað, sem voru mestu mistök sem ég gat gert.

Hrossin mín eru útigangshross á veturna og ég nota þau ekki því ég hef ekki aðstöðu til þess, svo hún var tekin af járnunum og sett í haga með stóðinu. Núna í sumar hef ég verið að vinna helling í henni og gefa henni fullt af athygli og ákvað núna fyrir nokkrum dögum að gefa beislinu aftur séns því hún er svo leiðinleg og erfið með mélum.

Í þetta skiptið fór ég með hana í aðhald fyrstu skiptin, og svo lítin hring í kringum bæjarstæðið hérna heima, það gekk allt eins og í sögu. Gerði hraðabreytingar, hægði á henni, stöðvaði hana og svo framvegis. Hún var æði með beislið, svo núna í dag fór ég í reiðtúr á henni með systur minni (hún verður oft æst við að vera með öðrum hestum) en allt gekk eins og í sögu. Ég gat loksins fengið hana til að taka hægt tölt, eitthvað sem hefur ekki verið hægt, hún æðir svo af stað. 

Þetta beisli hefur gert kraftaverk fyrir hana og mig, hún er allt annar reiðhestur. Nú mun ég aldrei nota neitt annað á hana, hún mun aldrei vera notuð á mélum aftur! 

Þannig að ég vildi bara þakka þér fyrir góða hjálp fyrir ári síðan og ég mæli með þessari vöru fyrir alla sem hafa hagsmuni hestanna fyrir brjósti, þetta er algerlega það sem koma skal! Næst eru það bara skór í staðin fyrir skeifur ;)

Takk æðislega fyrir frábæra hjálp og ennþá betri vöru, ég er hæstánægð. Mun örugglega kaupa fleiri svona í framtíðinni fyrir hina reiðhestana mína!

Ástarkveðjur, Guðfinna.




Úr kvikmyndinni L7: Hrafnar, sóleyjar og myrra sem Eyrún tók þátt í að skrifa og leikstýra.


22. mars 2011
Eyrún Ósk Jónsdóttir leikstjóri & rithöfundur

Hryssan mín hún Saga lét alltaf illa með hefðbundinn beislabúnað. Hún var stöðugt að hrista höfuðið þegar ég var á baki.

Í hvert sinn sem ég tók í tauminn togaði hún á móti sem gerði það að verkum að hún stífnaði upp. Hún var gjörn á að fá gadd. 

Eftir að ég fór að nota Beisli án Méla gjörbreyttist hún. Það tók ekki nema þrjú skipti fyrir hana og þá var hún búin að læra á nýja beislið. Hún er steinhætt að hrista höfuðið í reið og það besta er að hún er hætt að toga á móti þegar ég tek í taumana. Vegna þessa höfum við náð miklu betra taumsambandi og hún hlustar mun betur á mig. Hún hefur ekki fengið gadd af viti síðan ég fór að nota nýja beislið. 

Takk fyrir okkur!


Picture



18. júlí 2010
Ester Hilmarsdóttir

Veistu það ég verð bara að segja að The Bitless Bridle er algjör snilld.


Tengslin á milli okkar (Flygsu) eru orðin miklu miklu sterkari en þau voru (þau voru sterk en ekki svona). 

Takk æðislega fyrir beislið!


Kveðja,
Ester & Flygsa



28. mars 2010
Alexandra


Ég keypti mér Beisli án Méla og prófaði það á mjög góða meri og hún var ekki góð með það fannst mér, þegar að ég hugsa um það þá hef ég alveg pottþétt sett það vitlaust á það er ekki spurning. En ég setti það bara uppá snaga og þar hékk það. Núna í sumar keypti ég mér ótaminn hest. Gullfallegan með mikla hæfileika. Ég tamdi hann og allt gekk vel ég gat labbað til hans í gerðinu og náð í hann.

Hann var óhræddur við manninn og virtist ætla að verða mesta gæðablóð, en þegar það kom að gangsetningu hjá honum þá fóru hlutirnir að breytast hann breittist í stressaðan og erfiðan hest. Síðan núna í vetur tók ég hann inn og byrjaði að þjálfa hann og allt gekk á afturendanum. Ég náði honum aldrei í gerðinu, erfitt að beisla hann, stóð ekki kyrr þegar að farið var á bak, sem að hann hafði alltaf gert í tamningunni. Hann var taugaveiklaður, mjög spenntur, stressaður, stífur, sást oft í hvítuna í auganu. Hann stífnaði alltaf upp þegar að tekið var í tauminn og opnaði munnin og rak út úr sér tunguna þegar að tekið var í tauminn. Þetta stendur allt á vefnum beisli.net og ég opnaði þennan vef og las þetta og ég bara sá strax að mélin væru vandamálið. Ég las vel hvernig ætti að stilla beislið og fór út í hesthús.

Það heyrðist ekkert kling í mélum á þessu galdratæki svo að það var ekkert mál að koma þessu á hann. Ég steig á bak og hann stóð kyrr, það var enginn spenna í honum, hann fetaði slakur og frísaði en hann var vanur að tippla á fetinu stífur eins og spíta. Hann var ekki með þetta juð í hálsinum þegar að haldið var við hann á töltinu. Hann var vanur að drífa sig rosalega mikið, en hann bara slakaði á og teygði hausinn vel fram og niður.

Þetta galdrabeisli hefur gert hestinn minn að hestinum sem að hann er í raun og veru og núna held ég að allir geti riðið þessu gæðablóði. Ég get ekki lýst því hvað ég er ánægð með hann og mun ALDREI nota mél aftur á hann ! Ég get ekki beðið eftir að fara á hann aftur og þá verður hann sennilega enn betri.
 
Bestu kveðjur,
Alexandra



13. desember 2008
Sigrún Hanna

Sæl. Ég vildi bara láta vita að beislið virkar alveg frábærlega. Hún er bara 5 vetra hún Sóldís mín en tók beislinu alveg rosalega vel og henni fannst þetta ekkert mál. 

Ég þakka kærlega fyrir góða vöru :)

Kær kveðja,
Sigrún Hanna


18. mars 2008
Eva Dögg Einarsdóttir

Ég keypti Beisli án Méla í janúar og var mjög spennt að prófa það. Folinn sem ég ákvað að nota beislið á til að byrja með var nýlega taminn. Þegar við fengum hann úr tamningu var okkur ráðlagt að reyna að láta hann bara brokka til að byrja með. Það var hreinasta kvöl og pína að beisla hestinn, hann barði hausnum til og frá og gerði allt til að þurfa ekki að fá mélin upp í sig. Þegar komið var á bak var hann mjög hlýðin og góður miðað við að vera lítið taminn en hann vildi helst ekki brokka. Til að hann fengist á brokk þurfti maður að leggjast fram og slaka taumnunum alveg. Þetta var mjög slæmt því ef eitthvað varð til þess að hann fældist þá hafði maður ekki neitt vald yfir honum. Það kostaði mikil átök að róa hann og mikla fyrirhöfn að ná honum slökum aftur svo hann gæti brokkað (hann brokkaði ekki ef hann var spenntur eða stressaður). Þegar átti að snúa honum og beygja varði hann sig ávallt þó meira á vinstri hliðinni (hann fékk gadd mjög snemma í tamningunni). 

Þessi hestur sótti aldrei fram í reiðtúrum og var mjög vængbrotin og óöruggur ef hann þurfti að fara eitthvað einn. Þegar komið var af baki aftur varð maður helst að hlaupa á undan honum því hann ætlaði mann alveg lifandi að drepa með því að reyna að klóra sér á manni (maður fékk nokkra marbletti og svoleiðis fínheit).

Eins og ég sagði áður þá fékk ég Beisli án Méla í janúar. Þá var hesturinn búinn að vera inni í hálfan mánuð og búið að reyna að ríða honum á mélum með svipuðum árangri og sagði áður. Ég byrjaði að taka hann með öðrum rólegum hesti í gerði og fór síðan í stutta reiðtúra. Ég ætla ekki að segja að hann hafi lagast eins og hendi væri veifað hann hélt áfram á láta illa þegar var verið að leggja á hann, var hálf bremsulaus til að byrja með (*líklega hefur beislið verið of laust stillt) og var áfram stífur í beygjum. Ég var heldur ekki að búast við að þetta myndi lagast ein, tveir og bingó.... En smátt og smátt fór hann að læra inná þetta. Fyrst var gangurinn í dálitlu ójafnvægi en fljótlega fór hann að brokka án mikillar fyrirhafnar, svo fór hann að sækja í sig veðrið, varð viljugri og reyndi að komast fremst í reiðtúrunum og varð sáttari við að fara einn frá hesthúsunum.

Hesturinn varð liðugri og sáttari við knapann. Hann gerir ennþá svolítið af því að klóra sér utan í mann en ekki næstum því eins mikið og áður fyrr. Niðurstaðan er sú að hesturinn er miklu öruggari, þægari og að öllu leiti skemmtilegri reiðhestur. Við höfum jafnvel getað notað hann fyrir minna vant fólk, þannig að þrátt fyrir nokkra hnökra þá er þessi hestur alveg að blómstra, sem ég vil meina að hann hefði ekki gert án Beislis án Méla. 

Við Röðull þökkum fyrir okkur!



Picture
24. nóvember 2007
Harpa Kristinsdóttir

Ég prófaði Beisli án Méla í fyrsta skipti á hesti sem ég hafði aldrei riðið áður
 og honum hafði aldrei verið riðið með þessa gerð af beisli.

Ég var óörugg áður en ég steig á bak en hefði alls ekki þurft að vera
 það. Hesturinn svaraði beislinu strax og án allra vandamála. 

Hvort sem ég var að krefja hestinn um sérstakan höfuð- eða líkamsburð
eða gangtegund þá var það ekkert vandamál. Auk þess að hesturinn reif
aldrei í taum eða mótmælti að öðru leyti beislinu.
Ég gef því Beisli án Méla toppeinkunn.




Picture
30. nóvember 2007
Telma Ben

Ég prófaði Beisli án Méla á ungan hest sem er mjög viljugur, kraftmikill og ekki mikið gerður.  Hann gerði allt sem hann var beðinn um átakalaust, hvort sem það var að stoppa, hægja niður, beygja eða gefa eftir.


Beisli án Méla virkaði að mestu leyti alveg eins og að vera með mél uppi í hestinum. 

Ég mæli því eindregið með þessum beislabúnaði, hvort sem það er til að hlífa munnvikum hestsins eða við almenna þjálfun. Ég mun án efa notfæra mér þessa nýjung í framtíðinni.